Laust fyrir klukkan eitt í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um húsbrot í Austurbænum. Er lögreglu bar að garði var hinn óprúttni enn á staðnum og því handtekinn á vettvangi. Mátt sá hinn sami dúsa í grjótinu í nótt í þágu rannsóknar málsins.
Tilkynningar bárust lögreglu um tvær líkamsárásir. Annars vegar í miðbænum og hins vegar í skemmtistað í umdæmi lögreglu í Kópavogi og Breiðholti. Engar frekari upplýsingar fylgdu.
Þá sinnti lögreglan eftirliti og fjarlægðu skráningarmerki af þó nokkrum ótryggðum og óskoðuðum ökutækjum.
Tilkynning vegna innbrots barst á lögreglustöð 4, sem sinnir Grafarvogi, Grafarholti og Mosfellsbæ. Málið er nú til rannsóknar.