Miðvikudagur 11. desember, 2024
1.8 C
Reykjavik

Óður einstaklingur veittist að dyravörðum með hníf

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skarst í leikinn þegar óður einstaklingur vopnaður hníf ógnar dyravörum á skemmtistað í miðborginni í nótt. Ekki er vitað hvað honum gekk til en var hann yfirbugaður og brunað með hann beint í steininn, þar sem hann mun dúsa í þágu rannsóknar.

Litlu síðar barst tilkynning um líkamsárás í miðbænum. Ekki fengust frekari upplýsingar um málið.

Lögreglunni í Kópavogi og Breiðholti barst tilkynning vegna slagsmála rétt rúmlega fjögur í  nótt. Átökin áttu sér stað fyrir utan krá í hverfinu.

Hefðbundnu umferðaeftirliti var sinnt í nótt og var í það minnsta einn stöðvaður runaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sá var einnig sviptur ökuréttindum. Laus eftir hefðbundið ferli.

Lögregla fjarlægði skráningarmerki af mörgum bifreiðum vegna skorts á tryggingum og skoðun/endurskoðun.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -