- Auglýsing -
Klukkan hálf fimm birtist tilkynning inni á vef Veðurstofu Íslands þar sem segir:
„Áköf jarðskjálftavirkni er hafin austan Sýlingarfells. Virknin bendir til þess að kvikuhlaup sé hafið og eldgos getur hafist í kjölfarið.“
Uppfærsla á frétt frá Veðurstofu segir:
- Áköf smáskjálftvirkni er hafi austan Sýlingarfells.
- Virnin bendir til þess að kvikuhlaup sé hafið og eldgos getur hafist í kjölfarið.
- Virknin er á suður enda gossprungunnar þar sem gaus 18. desember
- Skjálftavirknin færist nú í suður.
- Aflögunin sem nú mælist er mun minni en hefur áður mælst í aðdraganda eldgosa. Það gæti bent til þess að minni kvika sé á ferðinni nú en í fyrri eldgosum.
- Dýpi skjálftavirkninnar bendir ekki til þess að kvika sé að brjóta sér leið til yfirborðs eins og staðan er núna.
- Ein þeirra sviðsmynda sem nefnd hefur verið er að kvikuhlaup verði án þess að til eldgoss komi.
Veðurstofan hefur uppfært hættumat fyrir svæðið: