Pálmi Gestsson leikari er ekiki sáttur við þann hluta þjóðarinnar sem haldinn er útlendingahatri. Hann vakti athygli á því hatri sem gaus upp á samfélagsmiðlum í garð Bashar Murad sem keppti til úrslita í Söngvakeppninni en laut í lægra haldi fyrir stórsöngkonunni Heru Björk Þórhallsdóttur.
„Að sjá eins grímulausan rasisma og mannhatur eins og sumt fólk sýndi á samfélagsmiðlum í kvöld það kom mér fullkomlega í opna skjöldu og er þyngra en tárum taki,“ skrifaði Pálmi og uppskar gríðarleg viðbrögð þar sem fólk slýsti skömm sinni vegna nettröllanna.
Hin hliðin á teningnum er það virðingarleysi og smánun sem fólk sýnir sigurvegaranum Heru Björk sem hefur ekki annað til saka unnið en að leggja allt sitt í flutning á góðu lagi sem uppskar verðskuldaðan sigur. Líklega gat aldrei orðið sátt um niðurstöðuna sem varð. Ef Bashar hefði unnið má reikna með að allt hefði farið á annan endann líka. Vinir Ísrael hefðu þá risið upp á afturlappirnar …