Börnum frá Grindavík verður boðið til sérstaks fundar við Umboðsmanns barna næstkomandi fimmtudag.
Í fréttatilkynningu frá Umboðsmanni barna, segir að fundur verði haldinn með börnum frá Grindavík fimmtudaginn 7. mars klukkan 9 til 12 en fundurinn fer fram í Laugardalshöll. Samkvæmt fréttatilkynningunni er markmið fundarins að heyra hvað þeim liggur á hjarta og hvernig stjórnvöld geta með sem bestum hætti staðið vörð um réttindi þeirra við núverandi aðstæður. Fundurinn er skiplagður í samvinnu við bæjaryfirvöld Grindavíkur.
Lögð verður áhersla á að skapa vettvang sem er á forsendum barnanna sjálfra þar sem þau fá að ráða umræðuefninu. Munu þau koma til með að vinna saman að skilaboðum til ríkisstjórnarinnar og mun Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra ávarpa fundinn. Embætti umboðsmanns barna mun fylgja þeim skilaboðum eftir við stjórnvöld.