Úthlutun styrkja menningar, íþrótta- og tómstundaráðs og útnefning Listhóps Reykjavíkur 2020 fór fram í Iðnó í dag þann 29. janúar.
Faghópur skipaður fulltrúum Bandalags íslenskra listamanna og Hönnunarmiðstöðvar Íslands var falið að fara yfir styrkumsóknir en aldrei hafa borist fleiri umsóknir en í ár.
Alls var 251 umsókn til meðferðar þar sem sótt var um samtals 373.855.380 krónur.
Ráðið hafði 58.000.000 kr. til úthlutunar fyrir árið 2020 og veitti vilyrði fyrir 90 styrkjum og fimm nýjum þriggja ára samstarfssamningum fyrir þá upphæð. En fyrir eru 11 hópar með eldri samninga í gildi.
Ráðið samþykkti þá tillögu faghóps um að Reykjavík Ensemble, alþjóðlegur listhópur undir stjórn Pálínu Jónsdóttur, yrði útnefndur Listhópur Reykjavíkur 2020. Hópurinn fær tvær milljónir í styrk.