- Auglýsing -
Bríet átti rafmagnað augnablik á Bali.
Söngstjarnan Bríet Ísis Elfar er á Bali um þessar mundir, líkt og alþjóð veit en hún hefur verið dugleg að birta ljósmyndir og myndskeið í story á Instagram, frá því að fríið hófst. Í nýjustu myndskeiðunum má sjá að gríðarleg rigning er nú þar sem hún dvelur en hún náði að fanga alveg hreint rafmagnað augnablik. Hún sat á gólfinu í vistarverum sínum á Bali og las bók í mestu makindum, þegar skyndilega virðist koma elding fyrir utan og miklar þrumur fylgdu í kjölfarið nokkru síðar. Óhætt er að segja að Bríet hafi nánast misst andlitið, svo hissa var hún.
Hér má sjá myndskeiðið: