Eigandi Wok On í vandræðum.
„Þetta er mál sem er búið að vera í gangi í þó nokkurn tíma, eða frá því við sögðum upp samningum við Wok On í nóvember í fyrra. Við höfum reynt að koma okkur út úr þessum samningum en lagalega hliðin hefur verið þannig að við höfum ekki getað lokað stöðunum því þá værum við skaðabótaskyld,“ segir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, um slit viðskiptasambands Krónunnar við Wok On við mbl.is.
Í október á seinasta ári komst upp um matvælalager þar sem ónýtt matvæli voru geymd en var maturinn á lagernum í eigu Davíðs Viðarssonar, eiganda Wok On, og fyrirtækja hans. Þá fóru hjólin að snúast hjá heilbrigðiseftirvöldum og lögreglu og hefur Davíð meðal annars verið ásakaður um mansal. Wok On rak þrjá staði í verslunum Krónunnar en þeim hefur nú öllum verið lokað.
„Okkur blöskraði því að Wok On fengi að halda rekstri áfram,“ sagði Ásta að lokum.