- Auglýsing -
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu í gærkvöldi laust fyrir klukkan níu um eld í bifreið í Kópavogi. Slökkvilið fór á vettvang og var hundur sem var í bifreiðinni færður til dýralæknis vegna mögulegrar reykeitrunar. Ekki varð slys á fólki, en bifreiðin, sem var ekki í gangi, er ónýt.