- Auglýsing -
„Snemma í nótt barst okkur tilkynning um eld í bifreið og sendum við bíla frá tveimur slökkvistöðvum í verkefni en þegar fyrri bílinn kom á vettvang þá var sá síðari afturkallaður, en greiðlega gekk að slökkva eldinn,“ segir í tilkynningu frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var bifreiðin í Breiðholti.