Aðkoma Heiðu Bjargar Himisdóttur, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga, að kjarasamningum er fordæmd í dag af fulltrúum rúmlega 30 sveitarstjórna sem rita sameiginlega grein í Moggann í dag. Það sem fer fyrir brjóst skjólstæðinga Heiðu er að hún samdi um ókeypis skólamáltíðir fyrir hönd allra sveitarfélaga á landinu. Þetta þykir fulltrúunum vera óboðlegt en fagna því á sama tíma að langtímasamningur hafi verið gerður á vinnumarkaði. Þeir krefja Heiðu skýringa.
„Í dag hittast sveitarstjórnarfulltrúar af öllu landinu á ársþingi Sambandsins og þar er afar mikilvægt að formaðurinn skýri aðkomu sína …,“ segja greinarhöfundar í Mogganum og boða þannig uppgjör við formanninn á fundinum í dag.
Þegar grannt er skoðað kemur í ljós að fulltrúarnir sem vilja rukka skólabörnin áfram eru allir í Sjálfstæðísflokknum. Reikna má að átök verði á fundinum í dag og að innheimtumenn skólamáltíða muni bera upp vantraust á formanninn í þeirri viðleitni sinni að leiðrétta þá aðför sem felst í að gefa börnum að borða …