Auglýsingar íslenska ferðaþjónustufyrirtækisins Guide to Europe hafa fengið marga til að skella upp úr síðustu daga en í einni hennar má finna hinn geðþekka grínista Greip Hjaltason, sem er með yfir 1,3 milljónir fylgjenda á Instagram-reikningi sínum, Greipjokes. Það er óhætt að segja að Greipur slái ekki slöku við í herferð fyrirtækisins enda á hann líklega erfitt með að vera eitthvað annað en fyndinn og viðkunnanlegur.
Guide to Europe er fyrsta fyrirtækið í heiminum sem býður neytendum upp á þá þjónustu að bóka fullbúið frí með raddskipun í einni bókun. Snjallmennið Travis aðstoðar fólk við að bóka inni á www.guidetoeurope.com og er hann með allt á hreinu hvað Evrópufrí varðar – allt frá fluginu út og yfir í hótel, bílamál, hvað skal borða og einnig hvað skal gera. Travis kemur með allar góðu hugmyndirnar og það eina sem þú þarft að gera er að bóka, borga og brosa og jú að sjálfsögðu hlakka til ferðarinnar.
Hér má sjá hina fyndnu auglýsingu: