Felix Bergsson er horfinn af X-inu (áður Twitter).
Fréttaveita Björns Inga Hrafnssonar, Viljinn, vakti athygli á því í dag að Felix Bergsson, skemmtikraftur, fjölmiðlamaður og eiginmaður forsetaframbjóðandans Baldurs Þórhallssonar, sé horfinn af samfélagsmiðlinum X (áður Twitter). Á miðlinum hefur Felix verið nokkuð áberandi og hefur hann verið duglegur að láta í ljós skoðanir sínar á mönnum og málefnum, eins og gengur og gerist á slíkum miðlum.
Í umfjöllun Viljans er því haldið fram að forsetaframboð Baldurs vilji sópa X-færslum þar sem Felix hefur notað ógætilegt orðalag, undir teppið.
Viljinn birtir svo nokkur dæmi um færslur frá Felix sem gætu hafa farið fyrir brjóstið á einhverjum viðkvæmum: