Alls sótti 41 um starf útvarpsstjóra sem var auglýst laust til umsóknar 15. nóvember, en umsóknarfrestur rann út 9. desember. RÚV gaf út að nöfn umsækjenda um stöðuna yrðu ekki gerð opinber og hefur verið deilt um þá ákvörðun.
Sá orðrómur komst á kreik að rithöfundurinn Ólafur Jóhann Ólafsson hefði sótt um stöðuna en hann segir það ekki vera satt. Ólafur staðfesti í samtali við Vísi að hann hefði ekki sótt um stöðu útvarpsstjóra.
Starf útvarpstjóra var auglýst eftir að Magnús Geir Þórðarson sagði starfinu lausu, en hann var skipaður þjóðleikhússtjóri frá og með 1. janúar. Magnús Geir hafði gegnt stöðu útvarpsstjóra frá árinu 2014.
Gert er ráð fyrir að gengið verði frá ráðningu nýs útvarpsstjóra í lok þessa mánaðar.
Sjá einnig: 41 sækir um stöðu útvarpsstjóra