Aron Már Ólafsson eða Aron Mola eins og hann er kallaður, birti sjóðandi heita ljósmynd af sér á Instagram.
Leikarinn og áhrifavaldurinn Aron Mola ákvað að endurtaka leikinn frá því árið 2019 en þá birti hann ljósmynd úr heitapottinum á Akranes, Guðlaugu en á myndinni sýndi hann lögulegan rassinn eins og í tísku er hjá kvenþjóðinni, að minnsta kosti hluta hennar. Í ár fékk hann aðstoð en það var engin önnur en Bríet Ísis Elfar söngdíva sem tók hina rándýru ljósmynd. Aron gat auðvitað ekki haft myndina alveg eins og þá sem hann tók fyrir fimm árum og ákvað því að ganga skrefinu lengra. Hann berar sem sagt á sér rassinn á nýju myndinni og má ætla að Instagram fari á hliðina.
Hér má sjá myndina frá árinu 2019:
Og hér má sjá nýjustu snilldina: