Óskað var eftir aðstoð lögreglu í gær vegna líkamsárásar í 108 Reykjavík. Gerendurnir voru handteknir á staðnum og sleppt að lokinni skýrslutöku, en hvorugur þeirra hefur náð lögaldri. Málið er því unnið í samræði við foreldra og forráðamenn sem og Barnavernd Reykjavíkur.
Lögreglan í Garðabæ og Hafnarfirði fékk tilkynningu vegna fullorðins manns sem elti barn á röndum. Leit lögreglu að eltihrellinum bar engan árangur.
Tvær tilkynningar bárumst vegna unglinga að skemma hluti í og við Mjóddina. Lögreglan svaraði kallinu en skemmdarvargarnir voru farnir af vettvangi í bæði skiptin er lögreglu bar að garði.
Í Breiðholti stöðvaði lögregla barn, eftir að tilkynning vegna ólögráða einstaklings á stolinni bifreið barst. Málið er unnið í samstarfi við forráðamenn og Barnavernd.
Ölvuðum hótelgesti var vísað á dyr í miðborginni. Sá hafði ekki í önnur hús að vernda og fékk hann að gista í fangaklefa að eigin ósk.
Tilkynnt um ölvaða unglinga í hverfi 112. Málið unnið í samstarfi við forráðamenn og barnavernd.
Ökumaður var umsvifalaust sviptur ökuréttindum eftir háskalegan ofsaakstur. Hann ók á 176 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Sá á einnig von á hárri sekt.