- Auglýsing -
Margir stuðningsmenn íþróttafélagsins Fylkis ráku upp stóru augu í gær þegar auglýsing fyrir Bestu deildirnar í knattspyrnu var frumsýnd. Þar var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sýnd sem aðalstuðningsmaður félagsins. Gengu skilaboð milli fólks í Árbænum sem hafði ekki hugmynd að hún væri úr hverfinu, hvað þá stuðningsmaður Fylkis.
Þykir valið á Áslaugu ennþá skrýtnara í ljósi þessi að Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og einn vinsælasti stjórnmálamaður 21. aldar, er einn af dyggustu stuðningsmönnum félagsins og hefur verið í áraraðir …