Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir segist vera ánægð með að verkferlar Seðlabanka Íslands í ráðningarmálum hafi verið styrktir í kjölfar þess að kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði brotið jafnréttislög með ráðningu upplýsingafulltrúa í fyrrasumar. Gunnhildur sótti um stöðuna en fékk ekki. Í staðinn réði bankinn karl með minni menntun og reynslu og því kærði Gunnhildur ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála.
Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að Seðlabanki Íslands hefði haft samband við Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur í kjölfar þess að niðurstaða kærunefndar jafnréttismála lá fyrir. Þetta staðfestir Gunnhildur Arna í samtali við Mannlíf. „Ég er ánægð að fá staðfest að ófaglega var staðið að ráðningarferlinu og að bankinn hafi haft samband við mig í kjölfarið,“ segir hún, spurð að því hvernig henni líði með niðurstöðuna og hvað henni finnist um viðbrögð bankans í málinu.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var niðurstaða kærunefndar jafnréttismála sú að Seðlabankinn hafi brotið gegn jafnréttislögum með því að hafa ekki sýnt fram á að aðrar ástæður en kynferði hafi legið til grundvallar ákvörðun um ráðningu í starf upplýsingafulltrúa.
Einnig taldi nefndin að Gunnhildur hafi staðið umræddum karli framar varðandi bæði menntun og reynslu af kynningarstarfi og fjölmiðlun, en Gunnhildur Arna, sem starfar í dag sem dagskrárgerðarkona í Morgunútvarpi Rásar 2 og sem blaðamaður hjá Læknablaðinu, gegndi um tíma stöðu upplýsingafulltrúa Símans og hefur starfað við fjölmiðla frá árinu 2004 og stýrt fréttastofum, meðal annars sem ritstjóri dagblaðs. Karlinn sem um ræðir, Stefán Rafn Sigurbjörnsson, hefur hins vegar lokið BA-gráðu í stjórnmálafræði og meðal annars starfað sem sjónvarpsfréttamaður frá árinu 2018, útvarpsfréttamaður í tvö ár og blaðamaður á Fréttablaðinu í rúmt ár. Kærunefndin tók ekki gild rök bankans að Stefán hafi staðið Gunnhildi framar varðandi tungumálakunnáttu og þekkingu á efnahags- og peningamálum og fjármálamörkuðum, sem hvort tveggja séu þættir sem unnt sé að meta með fremur hlutlægum hætti.
„Ég legg áherslu á mikilvægi þess að bankinn skapi sér faglega umgjörð og fari að lögum og vona að ný yfirstjórn komi starfsemi bankans í rétt horf.“
Kjarninn greindi frá því á miðvikudag að Seðlabankinn ætli að una niðurstöðunni. Í aðdraganda þess var þeirri fyrirspurn beint til bankans hvort hann ætlaði að grípa til breytinga á verklagi sínu við ráðningar í störf með hliðsjón af því að þetta er í þriðja sinn frá árinu 2012 sem að bankinn brýtur jafnréttislög. Þá var svar bankans á þá leið að til stæði að fara yfir málið með það fyrir augum að tryggja að farið yrði að þeim viðmiðum sem um þetta gilda. Annað væri ekki hægt að segja að svo stöddu. Í gær sendi bankinn síðan Kjarnannum nýtt svar. Þar kom fram að verkferlar í þessum efnum hafi verið styrktir í kjölfar niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála.
„Mér finnist jákvætt að bankinn hafi styrkt ráðningarferlið sitt frá brotinu,“ segir Gunnhildur, þegar þetta svar bankans berst í tal. „Það hefði mátt gerast fyrr,“ tekur hún þó fram.
Spurð út í fyrrnefnd samskipti hennar við bankann segir hún málið ekki ná lengra að svo stöddu en svo að bankinn hafi haft samband. „Ég hef því ekki tekið afstöðu til framhaldsins,“ segir hún.
Hún undirstrikar þó hversu brýnt henni þyki að bankinn stundi fagleg vinnubrögð. „Ég legg áherslu á mikilvægi þess að bankinn skapi sér faglega umgjörð og fari að lögum og vona að ný yfirstjórn komi starfsemi bankans í rétt horf.“