- Auglýsing -
Það var nokkuð lítið að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt samkvæmt dagbók hennar.
Helst að frétta er að tveir ökumenn voru stöðvaðir í akstri grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og voru þeir látnir lausir eftir hefðbundið ferli. Þá var ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur þar sem hann ók á 123km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 80km/klst en auk hans voru þrír aðrir kærðir fyrir of hraðan akstur.