Sparibollinn, nefnast ný íslensk bókmenntaverðlaun sem veitt verða bestu ástarlýsingunni í íslenskum bókmenntum ár hvert.
Verðlaunin verða veitt í fyrsta skipti á árlegu málþingi Bókabæjanna austanfjalls, sem að þessu sinni eru helgað ástarsögum. Skipuð hefur verið þriggja manna dómnefnd sem velur úr innsendum tillögum.
Ástarsögur hafa gegnum tíðina notið mismikillar virðingar, jafnvel verið flokkaðar sem kvennabókmenntir og froða. Það fer sífellt minna og minna fyrir ástarsögunni sem er miður.
Aðeins eitt skilyrði fyrir tilnefningu
Lýsingin má standa stök eða vera hluti af stærra verki. Hún má ná til andlegrar ástar og líkamlegrar. Ástar milli karla, kvenna, barna, dýra, ættingja, vina, skipa, flugvéla, fólksflutningabifreiða og svo framvegis. Eina skilyrðið er að hafa komið út á prenti eða í öðru bókarformi á árinu 2019.
Allir geta tilnefnt lýsingu eða bók á Facebook-síðu Sparibollans.
Höfundur fegurstu ástarjátningarinnar hlýtur Sparibollann, rósumprýddan kaffibolla á fæti. Kaffibollinn er vísun í hina ótæpilegu og lífsfyllandi kaffidrykkju í bókum Guðrúnar frá Lundi. En einnig til þess að allt sem þú þarft er ást, og bolli af góðu kaffi.