- Auglýsing -
Tvíeykið Myrkvi gaf út nýtt tónlistarmyndband í morgun.
Myrkvi, sem samanstendur af þeim Magnúsi Torlacius og Yngva Holm, gaf út í morgun glænýtt tónlistarmyndband við lagið Lunatic sem er af nýjustu plötu Myrkva, Early Warning sem kom út á síðasta ári.
Mannlíf ræddi við Magnús um lagið og hafði hann þetta að segja um Lunatic: „Þetta er lag af nýjustu plötu Myrkva og mætti segja að sé sýrublandið indí marmelaði. Samantvinnaðar gítarlínur sigla lygnan sjó þar til aldan skellur á laginu, hljóðheimurinn rifnar og ómögulegt er annað en að fljóta með laginu.“
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið en myndbandsgerðin var í höndum Stefáns Arnars Alexanderssonar.