- Auglýsing -
Íslendingur einn, að nafni Sigurður G. Tómasson, í eina tíð með þekktari fjölmiðlamönnum Íslands, átti formóður er var gyðingur. En svo segir frá á vefsíðunni eirikurjonsson.is.
„Ein formóðir mín í kvenlegg hét Helga og kom frá Færeyjum þar sem foreldrar hennar voru kaupmenn, gyðingar frá Slésvík Holtsetalandi.“
Hann hefur ekki áhuga:
„Vinur minn einn, bandarískur rabbini segir mér að samkvæmt reglum zíonisma sé ég gyðingur og geti fengið ísraelskt ríkisfang. En áhuginn á því er enginn!“