Tveir bíræfnir þjófar náðust á öryggismyndavél í Reykjavík í gærnótt.
Búi Baldvinsson birti myndskeið úr öryggismyndavél við fyrirtæki nokkurt í Ármúlanum á Facebook í gær. Þar sjást tveir þjófar á ferð. „Ég þarf að ná tali af þessum mönnum sem kíktu við í húsnæðið okkar og stálu frá búninga og leikmyndadeild. Ég er ekki sáttur við að stolið sé frá harduglegu fólki. Langar bara að fá þessa hluti til baka. Bið ekki um meira en það.“ Þetta skrifaði Búi í gær en í samtali við Mannlíf segir hann að vitað sé hverjir voru að verki. „Það er verið að vinna í þessu. Vitum hverjir þetta eru.“
Hér má sjá myndskeiðið: