Eftir afsögn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í gær ríkir uppnám og upplausn á móðurlausu stjórnarheimilinu. Sjálfstæðismenn eru enn ævareiðir Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra vegna þeirrar lögleysu að banna hvalveiðar í fyrrasumar og þeir róttækustu, undir stjórn Jóns Gunnarssonar fyrrverandi dómsmálaráðherra, munu styðja vantraust á Svandísi. Þá mega Sjálfstæðismenn ekki til þess hugsa að forsætisráðuneytið verðui áfram í höndum Vinsti grænna. Ekki er minnsti vilji hjá VG til að afhenda Sjálfstæðisflokki Bjarna Benediktssonar forsætið og verða gjöreytt í næstu kosningum.
Eina sjáanlega málamiðlunin til að bjarga lifandi dauðri ríkisstjórn í bili er sú að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, taki að sér að vera forsætisráðherra. En þá þarf að finna lausn á vantraustinu á Svandísi og sannfæra Sjálfstæðismenn um að styðja ekki vantrauststillögu Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, á Svandísi …