Eigendur Klausturbars við Kirkjutorg 4 í miðbænum hafa efnt til leiks á Facebook-síðu sinni. Leikurinn snýst um að finna nýtt nafn á barinn en staðurinn mun opna í lok janúar með breyttu sniði og undir nýju nafni. Flestir landsmenn ættu að kannast við umræddan bar eftir að Klaustursmálið svokallaða kom upp.
„Hvað á barinn að heita? Skrifaðu þína hugmynd hér að neðan og þú gætir unnið risa flösku af Bollinger kampavíni fyrir þig og þína,“ segir í færslu Klausturbars.
Þá fylgir myndband með færslunni þar má sjá nöfnum eins og Alþingisbar og Kirkjubar bregða fyrir.
Færslu Klaustursbars má sjá hérna.