Töluverðar breytingar urðu á reglum um innflutning á ferskum kjötvörum um áramótin. Innflytjendur þurfa nú meðal annars að sýna fram á að að ófrosið og óhitameðhöndlað kjöt af kjúklingum og kalkúnum sé ekki smitað af kampýlóbakter og ekki er lengur gerð krafa um frystiskyldu á fersku kjöti.
Þá tóku viðbótartryggingar gildi sem þýðir að með sendingum af eggjum, svínakjöti, nautagripakjöti, kjúklingakjöti og kalkúnakjöti þurfa að fylgja staðfestingar á að ekki hafi greinst salmonella í vörunni.
Í reglugerð um vöktun á kampýlóbakter í alifuglum og alifuglakjöti segir að ófrystar eða óhitameðhöndlaðar sláturafurðir alifugla á markaði skulu vera af alifuglum þar sem staðfest hefur verið með sýnatöku í eldishópi á eldistímanum eða sláturhópi við slátrun, að ekki hafi greinst kampýlóbakter í viðkomandi hópi. Eldissýni sem notað er til grundvallar má ekki vera eldra en fimm daga gamalt fyrir slátrun. Að öðrum kosti skulu liggja fyrir rannsóknarniðurstöður úr viðkomandi afurðum þar sem staðfest hefur verið að ekki hafi greinst kampýlóbakter í viðkomandi framleiðslulotu. Rannsóknarniðurstöður skulu liggja fyrir áður en sláturafurðum er dreift á markaði.
Matvælastofnun hefur gefið út leiðbeiningar vegna breytinga á reglum, þær má skoða hérna.