Talsvert hefur gustað um hjúkrunarheimilið Sóltún undanfarin misseri. Uppsagnir hafa staðið þar á fólki í láglaunastörfum og reynt að koma böndum á erfiðan rekstur með því að segja upp fólki sem starfar beint eða óbeint við umönnun gamla fólksins.
Það erfiða verkefni hefur hvílt á herðum Höllu Thoroddsen framkvæmdastjóra að hagræða og reka fólk. Heimildin segir frá því að 16 starfsmenn hafi misst vinnuna í tveimur uppsagnarhrinum á síðsta ári.
En það var ekki eintómt svartnætti því í miðri uppsagnarhrinunni var keypt ný glæsibifreið að gerðinni Volvo XC60 undir Höllu. Hermt er að jeppinn kostar um 12 milljónir króna. Halla segir í samtali við Heimildina að ekkert sé óeðlilegt við að fyrirtæki í kreppu stundi slík útgjöld og fyrirkomulagið sé „alþekkt og mjög algengt hjá íslenskum fyrirtækjum.“
Hjúkrunarheimið fær allt að tvo milljarða króna á ári frá íslenska ríkinu í gegnum Sjúkratryggingar …