Í dag er sumardagurinn fyrsti um land allt.
Ágætt er í kortunum; spáin gerir ráð fyrir hægri norðlægri eða breytilegri átt og björtu veðri sunnan- og vestanlands; þar gæti hiti náð 13 stigum.
Lítum þá til norðurs: Á Norður- og Austurlandi þykknar upp; er útlit fyrir aðeins svalara veður en síðustu daga, og verður hiti á bilinu 0 til 7 stig að deginum.
Ekkert ósvipað veður verður uppi á teningnum á morgun; þá bætir í vind og lítilsháttar él verða norðaustantil annað kvöld.
Á laugardag mun svo bæta í úrkomuna um landið norðaustan- og austanvert; dálítil snjókoma eða él þar – en áfram bjart sunnan- og vestantil, og þá kólnar aðeins í veðri.