Mykola Solsky, landbúnaðarráðherra Úkraínu, hefur verið tekinn höndum – grunaður um spillingu, en þetta er samkvæmt yfirlýsingu saksóknara þar í Úkraínu í dag.
Solsky er gefið að sök að hafa sölsað undir sig landsvæði sem gróflega er metið á sjö milljónir dollara.
Hann tók við ráðherratign í mars 2022 – og var mál hans, er nú er komið upp, fyrir þann tíma.
Liggur grunur um að brotin hafi verið framin er Solsky var þingmaður; stjórnaði þá stóru landbúnaðarfyrirtæki.
Yfirvöld í Úkraínu hafa hert til muna baráttu gegn spillingu til að auka líkur landsins á að komast inn í Evrópusambandið.
Solsky sagði af sér embætti í gær, en tekið er fram að fleiri séu grunaðir í þessu máli; þar á meðal embættismenn.