Tónlistarmennirnir Sebastian Yatra og og Aitana gáfu út lagið Akureyri og fylgdi stórskemmtileg myndband með en það er tekið upp á Íslandi. Í myndbandinu sést meðal annars Kerið, Gullfoss, Reynisfjara og Akureyri en það er Akureyri.net sem greindi fyrst frá.
Óhætt er að segja þarna séu á ferðinni stór nöfn í tónlistarheiminum en á rúmum þremur sólarhringum hefur myndbandið verið spila 1,7 milljón sinnum. Þá hlusta tugir milljóna á tónlist þeirra á streymisveitunni Spotify í hverjum mánuði. Þá eru stjörnurnar vinsælar á Instagram en þau eru samtals með rúmar 30 milljónir fylgjanda á þeim samfélagsmiðli.
Samkvæmt Akureyri.net voru Yatra og Aitana par en eru ekki lengur.
Hægt er að horfa á myndbandið hér fyrir neðan