Sólborg Guðbrandsdóttir, rithöfundur og stuðningsmaður Baldurs Þórhallssonar forsetaframbjóðanda, er forviða á spurningum sem Baldur fékk í Spursmál, sjónvarpsþætti Stefáns Stefánssonar, í gær. Stefán pönkaðist á frambjóðandanum með spurningum um heimsóknir hans á kynlífsklúbba. Sólborg vekur í aðsendri grein á Vísi máls á forneskjunni sem felst í spurningunum. Greinin ber yfirskriftina Má spyrja homma að öllu?
Tilefni spurninganna er ljósmynd frá árinu 2012 sem á að hafa verið tekin af Baldri á tveggja ára afmæli skemmtistaðarins og kynlífsklúbbsisn Krash bar. Stefán spurði lævíslega purði hvort slíkt myndefni og dreifing á því gæti skaðað ímynd forsetaembættisins. Spyrillinn lét sem honum þætti „ekki létt verk“ að færa þetta mál í tal.
Baldur benti á að þessi tiltekna ljósmynd væri mjög siðsamleg og sýndi hann á bar. Hvaða starfsemi önnur hefði hugsanlega verið í þeim húsakynnum fyrr eða síðar kæmi honum ekki við.
Stefán taldi að meint hátterni Baldur gæti haft áhrif á ásýnd forsetaembættisins, heima og erlendis.
Baldur varðist fordómunum fimlega og benti á að bæði hann og maður hans, Felix Bergsson, hefðu í gegnum árin komið fram fyrir hönd þjóðarinnar og aldrei hefði verið svartur blettur á þeirra framkomu.
Margir eru eflaust sammála Sólborgu um að í spurningumum felist í senn hræsni og fordómar í garð samkynhneigðra og Mogginn hafi þarna stigið yfir eðlileg mörk …