Halla Hrun Logadóttir hefur á skömmum tíma skotist upp vinsældarlista þjóðarinnar og er í nýjust skoðanakönnuninni efst á lista yfir það fólk sem landinn vill helst sjá á Bessastöðum. Glúmur Baldvinsson alþjóðastjórnmálafræðingur segir að svo virðist sem framboð Höllu sé farið að vekja ótta meðal fylgismanna „NATO Kötu“. Segist hann varla hafa undan því að eyða áróðuspóstum frá fólki, sem haldi að Halla Hrund stjórni hinum ýmsu leynifélögum úti í heimi. Hér má sjá færsluna í heild sinni:
„Nú virðist framboð Höllu Hrundar vekja ótta og skjálfta og kraumandi kviku og landriss á meðal fylgismanna NATO Kötu. Og mögulega annarra minni spámanna. Til dæmis hef ég vart undan því að eyða áróðurspóstum frá fólki útí bæ sem flest gleypir það hrátt að téð Halla Hrund drottni yfir saumaklúbbi í Davos, Sviss, World Economic Forum, WEF, sem stefni að heimsyfirráðum með því að bólusetja þorra mannkyns. Sumsé Vefarinn mikli. Flestir þessara einstaklinga hafa þetta eftir http://xn--frttin-cva.is/ eða öðrum bullmiðlum. Og eiga það sammerkt að skorta rökræna hugsun.