Seðlar úr töskum sem var rænt úr sendiferðabíl Öryggismiðstöðvarinnar 25. mars í Hamraborg gætu verið komnir í umferð samkvæmt Vísi en talið er að milli 20 til 30 milljónir hafi verið töskunum sem rænt var. Eiga þeir að hafa fundist meðal annars á stöðum sem reka spilakassa en peningnum sem rænt var komu einmitt úr spilakössum Videomarkaðarins.
Samkvæmt heimildum fréttastofu Vísis er talið að blá litasprengja hafi sprungið í annarri töskunni og hún hafi fundist á víðavangi í Mosfellsbæ og ættu því seðlarnir að vera merktir bláum lit.
„Lögregla gefur á þessari stundu engar yfirlýsingar. Við getum ekki tjáð okkur um þetta mál eins og staðan er núna,“ sagði Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson rannsóknarlögreglumaður um málið.