Þann 7. maí næstkomandi kemur einstakur hópur listafólks saman í Háskólabíói til að sýna samstöðu með þeim sem búa nú við hörmulegar aðstæður á Gaza.
Fréttatilkynning barst í morgun þar sem sagt er frá tónleikum sem haldnir verða þann 7. maí næstkomandi en í tilkynningunni segir:
„Þetta kvöld sameinast listafólk og áhorfendur sem hafa öll það markmið að aðstoða þau sem þurfa á hjálp að halda og tónlist verður notuð til að hvetja fólk til að veita stuðning, ásamt því að óska eftir breytingum og friði, umfram allt. Allur ágóði rennur til mannúðaraðstoðar á Gaza, þar sem þörfin er mest, með aðstoð frá Rauða krossinum og UNICEF á Íslandi.“
Þegar miðar eru keyptir gefst kaupendum að veita auka fjárframlag til að styrkja mannúðaraðstoðina enn frekar.
Tónlistarfólk sem koma fram eru
Ásgeir Trausti – GDRN – Emmsjé Gauti
Una Torfa – Ellen Kristjánsdóttir – Eyþór Gunnarsson
Systur – Sigríður Thorlacius – Pálmi Gunnarsson – TÁR – Svala Björgvins – Lay Low
Kynnir er Íris Tanja Flygenring
Miðaverð er 4000 kr
„Lifi frjáls Palestína!“ segir að lokum í tilkynningunni.