Upptaka af samtali Jóhannesar Stefánssonar, uppljóstrara og fyrrverandi starfsmanns Samherja, við fyrrverandi eiginkonu sína fer nú sem eldur um sinu á netinu.
Samtalið við birt fyrr í dag á Youtube-rásinni JohannesTruth. Samtalið, sem átti sér stað í gegnum síma, mun hafa átt sér stað fyrir nokkrum árum. Í samtali við Stundina segir Jóhannes að á þeim tímapunkti sem símtalið átti sér stað hafi hann verið örvinglaður og sagt hluti sem hann sá mikið eftir.
Í umræddri upptöku má heyra Jóhannes ítrekað spyrja fyrrverandi konu sína hvort hún sé aumingi og tala um að „stúta henni“.