Mannlíf hefur undir höndum ákæru héraðssaksóknara gegn Kolbeini Sigþórssyni vegna grófst kynferðisbrots gegn barnungri stúlku.
Samkvæmt gögnum sem Mannlíf fékk frá Héraðsdómi Reykjaness er Kolbeinn Sigþórsson ákærður „fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni, með því að hafa að kvöldi sunnudagsins 26. júní 2022, […], með ólögmætri nauðung, haft önnur kynferðismök“ við stúlkuna með því að „nýta sér yfirburði sína yfir stúlkunni“. Kolbeinn er sakaður um að hafa dregið niður nærbuxur stúlkunnar og strokið kynfæri hennar „fram og til baka mörgum sinnum“ eins og það er orðað í ákærunni.
Telst meint brot varða við 1. mgr. 194. gr. og 1. mgr. 202. gr. almennra hegningalaga sem kveður á um að verði hann dæmdur sekur skuli hann sæta fangelsi í að minnsta kosti eitt ár en allt að 16 árum.
Í einkaréttarkröfu móður stúlkunnar er þess krafist að Kolbeinn greiði hinni ólögráða stúlku 3.000.000 kr. í miskabætur, auk vaxta. Þinghaldið verður lokað.
Hér má sjá ákæruna í heild sinni:
ÁKÆRA
HÉRAÐSSAKSÓKNARI
gjörir kunnugt:
Að höfða ber sakamál fyrir Héraðsdómi Reykjaness á hendur
X, kennitala 000000-0000,
[…],
fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni, með því að hafa að kvöldi sunnudagsins 26. júní 2022, […], með ólögmætri nauðung, haft önnur kynferðismök við A, kennitala 000000-0000, með því að nýta sér yfirburði sína yfir stúlkunni sem þá var […] ára gömul […], en ákærði dró niður nærbuxur A og strauk kynfæri hennar með fram og til baka mörgum sinnum.
Telst þetta varða við 1. mgr. 194. gr. og 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkrafa:
Af hálfu B, kennitala 000000-0000, er þess krafist að ákærða verði gert að greiða ólögráða dóttur hennar A, kennitala 000000-0000, miskabætur að fjárhæð 3.000.000 kr., auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá þeim degi er brot átti sér stað þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags. Þá er þess krafist að ákærða verði gert að greiða málskostnað að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi, að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun, verði þóknun réttargæslumanns ekki greidd úr ríkissjóði.
Skrifstofu héraðssaksóknara, Reykjavík, 11. janúar 2024
Karl Ingi Vilbergsson saksóknari
[…]