DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur og einn sá besti á landinu, verður með sínum mönnum í kvöld þegar liðið mætir Keflavík í öðrum leik undanúrslita Subway deildar karla.
Það er Karfan sem greindi fyrst frá.
DeAndre Kane var rekinn af velli í fyrsta leik liðanna; þurfti aga- og úrskurðanefnd því að taka málið fyrir.
Samkvæmt tilkynningu mun leikmaðurinn fá áminningu fyrir háttsemi sína; þarf að greiða 50 þúsund krónur í sekt.
Eða eins og fram kemur:
Agamál 54/2023-2024 Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, DeAndre Kane, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Grindavíkur og Keflavíkur, úrslitakeppni Subwaydeildar karla, sem fram fór þann 30. apríl 2024. Með vísan til ákvæðis l. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði aukinheldur greiða sekt að fjárhæð 50.000 kr. vegna óprúðmannlegrar framkomu sinnar í kjölfar brottvísunar úr áðurnefndum leik.