Formenn 12 meistarafélaga á sviði bygginga- og mannvirkjagerðar innan Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins hafa sent frá sér ályktun þar sem bent er á að skortur á virku eftirliti með lögvernduðu iðngreinum stefni öryggi landsmanna í hættu.
„Það er með öllu óásættanlegt að ekkert opinbert eftirlit er með þeim fjölmörgu lögvernduðu iðngreinum sem iðnaðarlögin ná til og engin úrræði til að stöðva ófaglærða aðila sem ganga inn á svið lögverndaðra iðngreina þrátt fyrir kærur til lögreglu og kvartanir til Neytendastofu. Á sviði bygginga- og mannvirkjagerðar er mikilvægt að hægt sé að grípa þegar í stað til úrræða sem stöðva fúskara sem ekki hafa tilskilin lögmæt réttindi. Þar er öryggi og heilsa landsmanna að veði,“ segir meðal annars í ályktuninni. Þar segir einnig að Meistaradeild Samtaka iðnaðarins hafi barist fyrir útbótum um árabil en að dæmi sanni að engin úrræði eru til staðar til að stöðva ólögmæta starfsemi í lögvernduðum iðngreinum.
„Því er nauðsynlegt að núgildandi iðnaðarlög verði endurskoðuð með það að markmiði að bæta eftirfylgni með lögunum. Störf iðnaðarmanna sem og réttur þeirra til að reka iðnað í atvinnuskyni nýtur lögverndunar og er tilgangur laganna að vernda neytendur, tryggja gæði og fagmennsku enda hafa iðnaðarmenn lokið bóklegu og verklegu námi til að öðlast kunnáttu og færni í faginu,“ segir einnig.
Í ályktuninni, sem má lesa í heild sinni hérna, eru stjórnvöld þá hvött til að koma á virku opinberu eftirliti.