Forsvarsmenn nýja flugfélagsins Play hafa undanfarið unnið að fjármögnun félagsins og hefur það valdið töfum á að hægt sé að hefja miðasölu. Nú bjóðast stofnendur og stjórnendur til að minnka hlutdeild sína í Play í 30% á móti 70% eignarhlut þeirra fjárfesta sem fást til að leggja félaginu til um 1700 milljónir króna í nýtt hlutafé. Frá þessu er sagt í Markaðinum í Fréttablaðinu.
Þar segir að upprunaleg hugmynd um að fjárfestar myndi eignast helmingshlut í Play á móti stofnendum og starfsmönnum hafi mætt mikilli andstöðu og því hafi verið gripið til þess ráðs að bregðast við gagnrýninni með því að bjóðast til að minnka hlutdeild stofnenda niður í 30%.
Þann 5. nóvember héldu forsvarsmenn Play fund í Perlunni og kynntu áfrom sín. Þar kom fram að stefnt væri að því að hefja sölu á flugmiðum í nóvember og að jómfrúarflugið yrði í desember. Síðan þá hefur verið greint frá því að hægar gangi að safna hlutaféi heldur en áætlað var.
Sjá einnig: Fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja boðaðir á fræðslufund hjá Play