Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra skrifaði stjórn RÚV bréf í síðustu viku þar sem hún óskaði skýringa á því hvers vegna ekki eigi að birta nöfn þeirra sem sækja um starf útvarpsstjóra. Þetta kom fram á Alþingi í dag.
„Ég hef sem ráðherra fjölmiðla sent stjórn RÚV bréf þar sem ég óska eftir skýringum; hvers vegna það er ekki og ríkir ekki fullt gagnsæi um listann,“ sagði Lilju við fyrirspurn Þorsteins Sæmundssonar, þingmanns Miðflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag.
Stjórn Ríkisútvarpsins hefur ekki viljað lista yfir umsækjendur, en umsóknarfrestur um stöðu Útvarpsstjóra rennur út í dag. Lilja sendi stjórn RÚV umrætt bréf 28. nóvember, þar sem það virtist að hennar sögn vera ágreiningur eða lagaleg óvissa um það hvort að málið sé í réttu ferli. Brýnt væri að fá úr því skorið. Á Alþingi í dag sagðist hún auk þess ítrekað hafa óskað eftir svörum. Svörin hafa enn sem komið er ekki borist.