Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.
Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þótt myndirnar séu óskýrar má ætla að þær geti gefið vísbendingar um hverjir mennirnir eru.
Uppfært kl. 15.00:
Mennirnir tveir, sem lýst var eftir í morgun, hafa gefið sig fram. Lögreglan þakkar fyrir veitta aðstoð.