Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Blaðamannafélags Íslands (BÍ) og Samtaka atvinnulífsins fer fram í dag á vinnustöðum blaðamanna Morgunblaðsins, Vísis, Fréttablaðsins og RÚV. Atkvæðagreiðsla stendur yfir til 17:00.
Verði samningurinn felldur má búast við því að BÍ hefji verkföll að nýju en verkfallsaðgerðum félagsins var frestað síðasta föstudag. Þá voru blaðamenn, ljósmyndarar og tökumenn á mbl.is, visir.is, frettabladid.is og ruv.is á leið í tólf tíma verkfall.
Atkvæðisrétt hafa þeir félagsmenn sem taka kjör samkvæmt kjarasamningnum. Tæplega 380 manns eru á kjörskrá og þarf þátttaka að vera 20% samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur til þess að niðurstaðan sé bindandi.
Kjarasamninginn sem kosið er um má sjá hérna.