Blaðamannafélagi Íslands (BÍ) hefur borist stuðningsyfirlýsing frá Alþjóðasambandi blaðamanna (IFJ) vegna yfirstandandi kjarabaráttu og verkfallsaðgerða. Þetta kemur fram á vef BÍ.
Í bréfi sem Younes Mjahed forseti IFJ sendi Hjálmari Jónssyni formanni BÍ eru fyrir hönd blaðamannasamtaka um allan heim sendar baráttukveðjur til félaga BÍ og aðdáun lýst á þeim aðgerðum sem félagið hefur farið í til að bæta kjör stéttarinnar.
Forsetinn kveðst stoltur bjóða fram stuðning IFJ í yfirstandandi verkfallsaðgerðum og óskar blaðamönnum góðs gengis í baráttunni.
Í yfirlýsingunni segir að félagið styðji verkfallsaðgerðir Blaðamannafélagsins.
Önnur lota vinnustöðvunar BÍ hefst klukkan 10:00 í dag og stendur yfir í átta klukkustundir.