- Auglýsing -
Í nótt var stóru svæði við frystihúsið á Tálknafirði lokað vegna ammoníaksleka frá gömlu frystihúsi. Útkall barst um klukkan þrjú í nótt eftir að vegfarendur hefðu fundið mikla ammoníakslykt. Ekki er talið að mengunin sé skaðleg en ólyktin stuðar Tálknfirðinga.
Davíð Rúnar Gunnarsson, slökkviliðsstjóri í Vesturbyggð, sagði í samtali við Ríkisútvarpið í morgun að hætta væri ekki á ferðum en lyktin sé sterk. „Sem betur fer var vindátt hagstæð þannig að reykinn lagði út á sjó í staðinn fyrir yfir þorpið,“ sagði Davíð.
Slökkvilið var kallað út frá Tálknafirði, Bíldudal og Patreksfirði.