Félagar Slysavarnafélagsins Landsbjargar búa sig nú undir eina af sínum mikilvægustu fjáröflunum, sölu Neyðarkallsins, en átakið fer fram dagana 31. október – 2. nóvember.
Neyðarkallinn 2018 var tileinkaður 90 ára afmæli Landsbjargar og því klæddur í stíl við það björgunarsveitarfólk sem á undan gekk. Neyðarkallinn í ár er hins vegar búinn nýjustu tækni en þar er dróninn í aðalhlutverki.
Skipulagning og framkvæmd verður með svipuðu sniði og undanfarin ár og er átakið auglýst og kynnt í öllum helstu fjölmiðlum.
Lykillinn að velgengninni undanfarin ár er góð þátttaka félaga Landsbjargar um allt land sem hafa gefið sér tíma til að selja Neyðarkall björgunarsveita á fjölförnum stöðum þessa daga, og síðan en ekki síst góðum viðbrögðum almennings sem kaupir Neyðarkallinn og styrkir með því starf Landsbjargar um allt land.