Íbúar í fjölbýlishúsi í Santa Monica í Kaliforníu eru komnir nóg af nágranna sínum. Að sögn íbúanna labbar maðurinn reglulega um nakinn á lóð fjölbýlisins og níðir fólkið í húsinu á meðan. Ein kona sem býr í húsinu segir að maðurinn hafi sagt að hún sé „þræll.“ Þá hefur hann verið sakaður um að fróa sér fyrir framan sundlaug fulla af börnum og kúka á bílastæði hússins. Íbúarnir, sem leigja allir íbúðir í húsinu, hafa kvartað til eiganda fjölbýlisins vegna háttsemi mannsins en hafa lítil viðbrögð fengið. Þá hefur maðurinn verið ítrekað handtekinn af lögreglu en sleppt fljótt aftur. Lögreglan á svæðinu hefur sagt að hún hafi sinnt mörgum útköllum í fjölbýlinu og maðurinn muni þurfa ganga undir sálfræðimat áður en næstu skref verða ákveðin.