Búðaþjófar voru víða á ferli í gær og sumir þeirra náðust. Ekki var þó um stórtækan þjófnað að ræða, heldur „eitthvað um hnupl“ eins og segir í dagbók lögreglunnar. Talsvert var um grunsamlegar mannaferðir í borginni og hávaðaseggir voru víða.
Í miðborginni var lögreglan kölluð til vegna sauðdrukkins manns sem var til ama og leiðinda á krá. Hann reyndist vera æstur, óðamála og hávær. Sá drukkni þverskallaðist við og hlýddi í engu fyrirmælum lögreglu. Hann var handtekinn og vistaður í klefa sökum ástands og hegðunar. Hann mun horfast í augu við hegðun sína í morgunsárið þegar hann vaknar á gúmmídýnu í fangaklefa.
Skóþjófur var á ferð í sundlaug í Reykjavík. Hann gerðist fingralangur við skórekka og hafði með sér skótau á brott. Málið er ekki upplýst en er í rannsókn.
Ökumaður á hraðferð náði ekki að sveigja hjá ljósastaur. Hann hafði misst stjórn á bifreið sinni og felldi staurinn og stórskemmdi bifreiðina. Ökumaðurinn reyndist hvorki vera ölvaður né undir áhrifum annarra efna. Hann iðraðist og játaði að hafa ekið of hratt og misst stjórn á bifreiðinni sem er óökufær.
Ökumaður sem stöðvaður var í umferðinni var látinn blása en reyndist vera undir mörkum. Þó kom á daginn að hann var án ökuréttinda. Honum var gert að hætta akstri og á yfir höfði sér sekt að lágmarki 120 þúsund krónur.