Pétur Eggerz sýnir hvaða barnaverndarlög yrðu brotin ef hinn 11 ára gamli Yazan Aburajab Tamimi verður rekinn frá landinu eftir Verslunarmannahelgina.
Pétur Eggerz Pétursson heldur úti vinsælli Instagramsíðu þar sem hann birtir ljósmyndir og myndbönd úr lífi sínu. Undanfarnar vikur hefur hann þó einblínt á mótmæli gegn lögreglunni og réttindi Palestínumanna, sem hafa mörg hver slegið í gegn og verið deilt á samfélagsmiðlunum. Í gær birti hann myndband þar sem hann útskýrir hvaða ákvæði Barnaverndarlaga íslensk yfirvöld myndu brjóta, verði Yazan rekinn frá landinu í byrjun ágúst, líkt og stendur til.
„Þrátt fyrir það að íslenskum ráðamönnum hefur verið gert það deginum ljósara að það að setja Yasan upp í flugvél og fara með hann til Spánar setur hann í bráða lífshættu, þar sem langalgengasta dánarorsök einstaklinga með Duchene-sjúkdóminn er líkamlegt hnjask, þá stendur ennþá til að kasta honum úr landi eftir Verslunarmannahelgina,“ segir Pétur í upphafi myndskeiðsins. Fer hann síðan yfir þau lög sem brotin verða ef brottflutningurinn verður að veruleika. Við myndskeiðið skrifaði hann: „Ráðamenn fá ekki að brjóta á barnasáttmálanum!!“
Hér má sjá myndskeiðið:
View this post on Instagram