Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson hefur keypt hlut í Hlöllabátum og segir hann að fjárfesting hans í fyrirtækinu sé fyrsta skref af nokkrum í þeirri framtíðarsýn sem hann hefur fyrir félagið.
„Fyrir mér skiptir miklu máli að það sé saga og sál í verkefnum,“ segir Simmi í Facebook-færslu og bendir á að Hlöllabátar hafa verið til síðan 1986 og því fylgt landanum í 33 ár.
„Gæði, hraði og gott verð hafa einkennt staðina og mun mín aðkoma ekki breyta neinu í þeim efnum,“ segir hann og bætir við að hann sjái tækifæri til að efla starfsemi félagsins rekstrarlega, markaðslega og sóknarlega.
Að lokum slær Simmi á létta strengi og segir kaupin ekkert hafa með bátastríð að gera þó að frétt Fréttablaðsins í dag hafa ratað undir auglýsingu frá Subway, en eins og þekkt er af fréttum hafa Simmi og Skúli Gunnar Sigfússon aðaleigandi Subway átt í deilum um lóðarréttindi á Hvolsvelli og og verður dómur í málinu kveðinn upp í Landsrétti í fyrramálið.