Stjórn Solaris – hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi hafa lagt fram kæru á hendur Helga Magnúsi Gunnarssyni, vararíkissaksóknara, vegna ummæla sem hann lét falla dagana 16. júlí og 19. júlí s.l. um innflytjendur og flóttafólk frá Miðausturlöndum og svo um Solaris hjálparsamtökin, sjálfboðaliða þeirra og skjólstæðinga. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu frá samtökunum.
Samkvæmt tilkynningunni telja samtökin að ummælin feli meðal annars í sér rógburð og smánun vegna þjóðernisuppruna eða þjóðlegs uppruna, litarháttar, kynþáttar eða trúarbragða sem og ærumeiðingar samkvæmt almennum hegningarlögum.
Ennfremur segir í fréttatilkynningunni að samtökin hafi tilkynnt sömu ummæli vararíkissaksóknara með formlegum hætti til ríkissaksóknara með tilliti til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og almennra hegningarlaga.
„Vararíkissaksóknari er staðgengill ríkissaksóknara sem er æðsti handhafi ákæruvalds hér á landi. Í ljósi þess að Helgi Magnús Gunnarsson gegnir embætti vararíkissaksóknara eru ummæli hans sérstaklega alvarleg og áhrif þeirra mikil. Því er mikilvægt að fara lengra með málið,“ segir orðrétt í tilkynningu Solaris.
Að lokum segir í fréttatilkynningunni að framferði Helga grafi undir trausti til embættis ríkissaksóknara.